Lára
veisluhöld
marteinn mosdal
Myndasöfn
17.09.2007 12:12:40 / daishonin

nú meina ég það

ég er búin að fá nóg af því að geta ekki bloggað og er farin:^)

finnst það samt ekki gaman að yfirgefa þetta bloggsvæði, þar sem ég er farin að kunna á það. en þetta er fáránlegt, það var ekkert hægt að blogga alla helgina:klikk:

 

komið yfir á hina síðuna    http://ditto.bloggar.is/


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 08:52:17 / daishonin

sumt gaman, sumt minna gaman;)

 

Erfitt að vakna á morgnana og fara af stað í skólann, það er allt notað, í morgun var málið að það þyrfti að segja upp mötuneytinu og hann ætlaði ekki í skólann fyrr en hann þyrfti ekki að borða þennann ógeðslega mat;)  hann sem hefur alltaf verið svo ægilega hrifin af skólakokkinum:o  veit bara ekki hvað er í gangi.  Nú er allur matur í skólamötuneytinu ógeð!!!

  Mér finnst nú einhvernveginn að dagurinn eigi bara eftir að vera góður, eða þá að ég er bara búin að ákveða það í hjarta mínu, ég fer á æfingu og Lárus Ingi fer á æfingu og svo ætlar Kamilla Rún að koma og gista hjá okkur.   

Svo er auðvitað barnastarf í fyrramálið og 12 tíma kyrjun á morgun frá 9 til 9;)  og kannski passa ég guðdóttur mína á morgun, þ.e.a.s. ef Rakel verður orðin frísk.   

Kvennafundurinn í gær var FRÁBÆR!!! Æðislega mikil kvennorka sem flæddi milli okkar  mikið talað og skipst á skoðunum, og hlegið;) ekki má gleyma að hlæja! Það er svo nauðsynlegt. 

  Hef ekki meira að babbla um svo eigið góðan dag og hér kemur leiðsögnin; 

14.september  

Hinir sönnu verðleikar manneskju koma ekki af ytra útliti eða titli heldur eiga rætur að rekja til víðfemi vitundarinnar.   Allt byggist á trú og sannfæringu. Það er það sem maður á í hjarta sínu og kjarninn í því sem við gerum sem skipta máli.

  

Þýtt úr For today & tomorrow, daily encouragement, Daisaku Ikeda

 

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 13:04:24 / daishonin

Þetta er málið

 

  

Ég er búin að fara í fyrsta og erfiðasta skiptið í CURVES, það var bæði gaman og gott.  Tók á, svitnaði og leið eins og ég hafi virkilega gert eitthvað af viti, í fyrsta sinn í langan tíma;)

  

Ég hlakka til að fara á morgun, það er mælt með að fara lágmark 3 í viku og það stefni ég á að gera og svo þegar ég er komin aðeins inn í þetta þá get ég bætt einu skipti við svona aðrahverja viku eða svoJ

  

Ég á meira að segja stefnumót á morgun:haha: 

  Það er kvennafundur í kvöld og ég hlakka svo til. Ég hreinlega elska að hitta þessar vinkonur mínar. Það er svo góður andi meðal okkar og hlýja, samkennd og stuðningur.  Mæli með því við allar konur að vera í einhverskonar uppbyggilegum hóp, hvort sem það er trúarlegs eðlis eða eitthvað annað. Hef meira að segja heyrt um að hópur af konum hittist með vissu millibili til að hlæja, JÁ HLÆJA!!! Því meira að segja þótt að hláturinn sé kannski ekki alveg einlægur til að byrja með þá gerir samt sitt gagn að hlæja. :lol:  

Tengdadóttirin á líka afmæli í dag, til hamingju Ólöf mín.Hún fékk að njóta minnar fögru raddar í morgun þegar ég söng fyrir hana;)

Greyið!!!  En hún lifði það af og var meira að segja enn brosandi þegar ég lauk söngnum:haha:

  

Eigið góðan dag og hér er leiðsögnin;

  

13.september

 

  Virkni bæði “djöfla” og “Búdda” eru til innra með okkur. Að lokum, er barátta okkar alltaf við okkur sjálf.  Hvort sem það er okkar búddíska iðkun eða það sem við erum að gera í þjóðfélaginu, eða í sögulegum skilningi, pólitískum eða efnahagsleg framvinda, þá er baráttan í eðli sínu alltaf milli jákvæðra og neikvæðra afla. 

 

Þýtt úr For today & tomorrow, daily encouragement, Daisaku Ikeda

 

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 10:07:20 / daishonin

bloggleysisblogg

Stundum er nú ekki mikið hægt að blogga um;)En Bjöggi mágur minn á afmæli í dag og er nú orðin heilu ári eldri en ég aftur;)

Til hamingju með það minn kæri.

  Það er svo mikið haust núna, miðað við hversu mikilfenglegt sumarið var. Og allir að verða veikir, ég hélt í fyrradag að ég væri að verða veik og svo var ég fín í gær og nú er ég aftur lasin, mér er svo illt í höfðinu og bakinuL óþolandi!!!!!!!!!  En ég er ekki með neinn hita og veit svosem ekki hvort þetta er einhver flensa eða hvort þetta er bara veðrið;) held nú samt að veðrið spili stóran part inn í:haha:  hefur gert það soldið undanfarin ár, alltaf meir og meir.  

Ég er að verða eins og gamla fólkið í gamla daga, “ég finn það á mjöðminni að það er að gera storm” hahahahahahahahahahaha  

EN!!! Ég er að fara í viðtal á eftir, í CURVES, það er nýleg líkamsræktarstöð fyrir konur og það eru engir speglar þar;););)  það eru einhver tæki og pallar til skiptis og þetta á að taka 30 mínútur í framkvæmd, og það er alltaf einhver leiðbeinandi til staðar í hringnum og maður er mældur og vigtaður mánaðarlega.  Og þetta er ekki mjög dýrt;) svo að ég ætti að ráða við að borga líka. Og þar sem að ég er búin að taka ákvörðun um að gera eitthvað fyrir mig þá er þetta tilvalið, ef þetta hentar mér. Kemur í ljósJÉg á líka 2 vinkonur sem eru byrjaðar og þær eru mjög ánægðar með þetta.  

Svo, ef maður miðar við veðrið þessa dagana, þá er nú ekki gæfulegt að vera úti að labba mikið, ég þoli engan vegin að vera úti þegar það er mikið rok, fæ ferlegt mígreni af því og leggst í bælið:haha:  alveg fáránlegt, sumir fara út að labba í rokinu til að losna við hausverk. En svona erum við nú misjöfn og það er ok;)

  Leiðsögnin fylgir svo eins og vanalega; 

12.september

  

Ég vona að þið, meðlimir ungmennadeildarinnar, munið, í anda Shijo Kingo,  sækja fram með Daishonin og lika með Hr. Makiguchi, Hr. Toda og mér sjálfum.  Þessi andi sameiginlegrar baráttu sem meistari og lærisveinn deila með sér er algjörlega kjarni SGI. Það stendur fyrir gott samband milli fólks sem tengist í einingu ásetnings og ábyrgðar.  Megi hvert ykkar eiga þá dýrmætustu og þýðingarmestu æsku.  Þetta tímaskeið tilheyrir ykkur. 

  

1271: ofsóknirnar við Tatsunokuchi. Daishonin, sem herlið stjórnvalda var um það bil að hálshöggva, bjargast þega ljósleiftur á næturhimninum hræðir aftökusveitina á braut.  Stjórnvöld ákveða síðar að senda hann í útlegð til Sado eyju.

  

Þýtt úr For today & tomorrow, daily encouragement, Daisaku Ikeda

    

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 14:31:23 / daishonin

Foreldradagur í skólanum

  

Já og námskynning, ekki má gleyma því, og kennararnir segja að þetta gangi rosalega vel, þ.e.a.s. að hafa 3ja bekk svona í einum stórum bekk sem skiptist svo niður í hópa.  Umsjónarkennari Lárusar Inga sagðist hafa verið hrædd við að takast á við þetta en þetta væri bara skemmtilegasta starfsumhverfi sem hún hefði verið í.  Auðvitað er kannski ekki allt fullkomið og jákvætt, en það er samt fleira jákvætt en neikvætt svo að það er bara gott. Svo eiga allir eftir að slípast til í þessu fyrirkomulagi;)

 

  

Allt gott að frétta hjá Kristínu líka. Hún mundi nú ekki vilja að ég færi að blása út á netinu hvort sem er eitthvað sem kennarinn sagði eða sagði ekki:haha:

 

  Ég er búin að fara um víðan völl síðan ég var búin í skólanum um 10 leytið, fór á Olís og svo niður í skatt og svo til Rakelar, ætlaði að koma aðeins við hjá Lindu Líf en hún var greinilega busy og skellti á mig:o  

Síðan ég kom heim erum við Roomba búnar að vera voða duglegar að ryksuga og ég að sópa til hennar undan því sem hún kemst ekki undir sökum stærðar;)  

Og bæ þe vei, ég labbaði niður í skóla og heim afturJ    

Leiðsögnin;

  

11.september

 

 

  Ekkert jafnast á við styrk þeirra sem hafa slípast og brotist í gegnum áskoranir og sigrast á erfiðleikum. Slíkt fólk óttast ekkert. Tilgangur búddískrar iðkunnar okkar er að byggja upp slíkan styrk og hugrekki. Að rækta upp svo ósigrandi kjarna er í sjálfu sér sigur.  Það er líka besti ávinningurinn. Þeim sem tekst vel til í þessari viðleitni munu njóta óviðjafnanlegrar hamingju; þeir munu birta æðsta ástand Búddatignar. 

 

Þýtt úr For today & tomorrow, daily encouragement, Daisaku Ikeda

 

» 5 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 16:40:33 / daishonin

Það er lægð

  

Pottþétt lægð yfir landinu og lægð yfir mér;)

 

  

Hef nú fundið fyrir því fyrr, að veðurstofan segir líka til um mína framistöðu, ekki bara hvernig veðrið verður :haha:

  

En það er bara svoleiðis og ég er svosem ekki að kvarta neitt mikið yfir því, mundi bara gjarnan vilja að rúmið mitt væri fast við rassin á mér svo að ég gæti bara látið mig detta í það hvar sem er;)

  

Vona að þetta verði ekki svona á morgun, þarf að fara í skólann á foreldrafund:lol:

  

Ætla að koma mér yfir til mömmu núna svo ég freistist ekki til að leggja mig aftur

  

Hér er svo leiðsögnin;

  

10.september

  

Æska þýðir að ala með sér von; það er tími þroska. Æska þýðir að ögra sjálfum sér; það er tími uppbyggingar. Æska þýðir að berjast fyrir réttlæti; það er tími framkvæmda.

  

Þýtt úr For today & tomorrow, daily encouragement, Daisaku Ikeda

 

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 21:35:15 / daishonin

Dagur að kveldi komin og ég ekki búin að blogga

  

Ég fór að sofa klukkan 10 í gærkvöldi og svaf til 10 í morgun;) þannig að ég er allavega vel útsofin og vel úthvíld. Þurfti greinilega á þessu að halda. 

 

Við Guðrún funduðum í dag um barnastarfið, það á að vera barnafundur næsta laugardag. Þetta verður ekki mjög flókið eða þungt í vöfum, við erum jú bara 2 í þessu, en gerum eins vel og hægt er.

Við ætlum að kyrja, syngja, fræðast og lita myndir, auðvitað búddískar myndir,:haha:  

Fór svo til mömmu og hitti Rakel og co, auðvitað knúsaði ég guðdóttur mína þar til hún fékk alveg nóg og vildi bara fara til mömmu sinnar;)  ég hitti hana alltof sjaldan!!!

Endaði svo á að borða hjá mömmu;) alltaf gott að borða þar

  

En leiðsögnin fylgir svo í lokin;

  

9.september

  Frekar en að sitja aðgerðarlaus og ryðga, verðum við að framkvæma, gefa af okkur og leggja eitthvað af mörkum til heimsins.  Franski fræðimaðurinn Robert Arnauld (1588-1674)  sagði, “Höfum við ekki alla eilífð til að hvílast?” Af hverju leitist þið við að hvílast meðan þið eruð enn á lífi? Spyr hann. Þetta eru sannarlega virðingarverð orð. Þegar ungt fólk sannarlega helgar sig, refsar næstum sjálfu sér, mun þeirra sanni stórfengleiki birtast. 

 

Þýtt úr For today & tomorrow, daily encouragement, Daisaku Ikeda

 

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 08:56:14 / daishonin

Lördag

Jæja, loksins komin helgi og skólavikan búin, ekki það að þá sé bara tómt frí og ekkert nám eða neitt, nei, nei, það þarf að lesa og skrifa og teikna og gera ýmislegt.

  Svo er lika afmælisveisla í dag sem við ætlum í. Sirrý frænka mín átti afmæli í gær og hún fær afmæliskveðjur þá núna fyrst ég mundi þetta ekki í gærmorgun;)  

Og ekki má gleyma að guðdóttir mín er 5 mánaða í dag. Og orðin svo stór og falleg, hún verður bara fallegri og fallegri með hverjum deginum og var hún nú falleg þegar að hún fæddist.  Svo er hún líka svo glöð.  

Svo má ekki gleyma að það er laugardagskyrjun og við LIL ætlum að fara, hann allavega ef hann vaknar;) það hefur nú borið á því undanfarið að hann á erfitt með að koma sér á fætur þegar hann loksins opnar augun, svo við sjáum nú bara til, kannski vill hann bara horfa á barnaefnið.  

Það er afmæli hjá Bæjarins bestu pylsum og þeir bjóða pylsuna á 20 krónur alla helgina og ætla að gefa ágóðann til góðgerðarmála. Frábært framtak og ég hvet ykkur til að fara og fá ykkur pylsu;)  ég er að spá í að bjóða minni fjölskyldu út að borða:haha: 

Það er hægt að kaupa 10 pylsur á 200 kall:lol:

  

Hér kemur svo leiðsögn dagsins;

  

8.september

  

Án mótstöðu verður enginn vöxtur. Það er erfitt að mótmæla þeim rökum. Það ástand þar sem við erum laus við vandamál og hömlur er ekki hamingja.  Hamingja nær út fyrir alla mótstöðu og hindranir og halda áfram að vaxa.

  

1957:  Josei Toda forseti mótmælir opinberlega notkun kjarnorkuvopna.

 

Þýtt úr For today & tomorrow, daily encouragement, Daisaku Ikeda

 

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 13:43:40 / daishonin

breytingar

 

Breytingar eru erfiðar, allar breytingar.   Það að ég skuli ætla að voga mér að taka stjórnina á heimilinu er bara eins og ég hafi varpað bombu. Það eru ekki lítil mótmæli og mótþrói.  Auðvitað veit ég að það tekur tíma og ég þarf að yfirstíga hindranir á leiðinni.  En vóóó…… hvað það er erfitt.

 

  

Það eru lika breytiningar í skólanum, nú eru t.d. þrír, 3ju bekkir saman í einum bekk, skipt í 3 hópa, með bara 2 umsjónarkennara og 2-3 hjálpara.  Á nýjum stað í skólanum, nýbyggðu húsi, með allt nýtt inni og fullt af nýju stuffi eins og t.d. míkrafón og hátalara svo að allir heyri í kennaranum;) þau eru að byrja að læra ensku:o  sem er frábært. En það er erfitt, og svo ægilega auðvelt að verða bara lasin og fá að vera heima.  Það er allt reynt.

  

Unglingurinn minn er líka að ganga í gegnum allskyns breytingar. Ég man reyndar hvað það var mikið af fullorðna fólkinu sem var bara hreint út sagt heimskt þegar ég var unglingur. Ekki endilega að mér finnist það ennþá, en mér fannst það þá;)

  

En það er sagt að breytingar og erfiðleikarnir við þær, séu stökkbretti í þroska og það er örugglega alveg satt.  Að minnsta kosti mundi ég ekki nenna að díla við breytingar ef það kæmi ekkert betra á eftir þeim.  Og það er mín reynsla. Það breytir lífinu og aðstæðum til batnaðar.  Kannski ekki alltaf, hjá öllum, en nógu oft til að ég nenni hreinlega að takast á við breytingar. 

  

Og með Daimoku eru mér allir vegir færir.

  

Hér er svo leiðsögn dagsins;

  

7.september

  

Frelsi þýðir ekki að það séu engar hömlur. Það þýðir að búa yfir staðfastri fullvissu á móti hverri hindrun. Það er hið sanna frelsi.

  

Þýtt úr For today & tomorrow, daily encouragement, Daisaku Ikeda

 

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 18:57:40 / daishonin

hálfstolið efni

Jæja, dagurinn að verða búin loksins þegar ég gef mér tíma til að setja nokkur orð á blað;)  Þetta er búin að vera alveg hreint frábær dagur, fór í morgunkaffispjallogsíkó til Ingu Hafdísar. Loksins!!!! Alveg komin tími á það.  Og það var svoooooo notalegt hjá okkur.  

Ég var svo ægilega dugleg að þrífa heimilið í gær og átti bara eftir að þurka smá af og flytja Gohonson í nýja Butsudaninn og gerði það í dagJ hann er svo fallegur í nýja skápnum, og það er svo fínt hjá mér og hreint. Þannig að það er eins og allir hafi fengið nýtt heimili;) 

Ég var að lesa blogg vinkvenna minna;) önnur skrifar um sanna vináttu og hin um þrælahald:haha:   

Nei, kannski ekki þrælahald, en samt, því að öll erum við jú þrælar einhvers. Þrælar vinnunar, þrælar heimilisins, þrælar ástarinnar, þrælar bakkusar, þrælar nikótíns, þrælar eiturlyfja……. Veit ekki hvort það breytir nokkru að vita að maður sé þræll einhvers?............. Jú og þó, þá getur maður allavega gert eitthvað “annað” þegar þrælslundin gerir vart við sig;) 

Hin skrifar um sanna vináttu, vináttu sem maður getur treyst á, vini sem hlaupa ekki æpandi og skrækjandi burtu um leið og þykknar upp.   

Ég hef hugsað mikið um vináttu, sanna vináttu, og ég er á þeirri skoðun í dag að ég verð að vera minn besti vinur. Ég verð að vera góð við mig og hugsa vel um mig og hlusta á mig………  ef ég geri það þá get ég verið besti vinur annara líka. En ég held að ég verði að setja mig í 1.sæti.  og ekki af “sjálfselsku” eða “eigingirni” eða “græðgi” og alls ekki til að “sýna einhverjum eitthvað”. Heldur til að ég sjálf geti verið hamingjusöm og glöð í mínum kroppi og geti verið góð mamma, systir, dóttir, vinkona………… 

Ég hélt nefnilega alltaf hér áður fyrr að það að elska sjálfan sig væri mont og eigingirni og sjálfselska og eitthvað voða slæmt. En svo er bara alls ekki.  Auðvitað getur maður alveg auðveldlega miskilið þetta eins og ég gerði, og þá er maður í svolítið miklum hroka og eigingirni, og oft að ganga á rétt annara. Af því að maður er svo mikið að hugsa um að hafa allt það besta sjálfur.

En það besta fyrir mig er ekki endilega það besta fyrir þig. 

Og þar liggur hundurinn grafin. 

Afhverju í ósköpunum ætti ég endilega að vilja nýjan bíl, þegar ég er fullkomlega ánægð með minn gamla, eða kaupa íbúð þegar ég er að borga mannsæmandi leigu???

Ætti ekki að vilja???   Ég allavega vill það ekki, þrái það ekki. Ég vil bara að ég og mín fjölskylda höfum það gott saman og gerum eitthvað saman og tölum saman.   

Jæja nóg af langloku í bili, ég sleppti mér alveg þarna í þessum pælingum, en munið kæru vinir að vera sjálf ykkar bestu vinir og verið góð við ykkur sjálf. Það kemur þá af sjálfu sér að þið eruð góð við aðraJ 

Leiðsögnin fylgir svo eins og vanalega; 

6.september 

Við heyrum fólk oft segja að það geti ekki. En það er viðhorf uppgjafarsinna. Ef þér finnst þú ekki vera hæfur til einhvers, þá skaltu tengjast hinum mikla forða af möguleikum sem liggur innra með þér. Þar sem við helgum okkur búddisma Daishonin, getum við leitað aðstoðar í daimoku. Ef við kyrjum daimoku fyrir framan Gohonzon, getum við birt alla þá hæfileika og styrk sem við munum nokkurntíman þarfnast. 

Þýtt úr For today & tomorrow, daily encouragement, Daisaku Ikeda

  

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 08:44:32 / daishonin

flensa, kvef, útivist barna og Júdó

Það er endalaus slappleiki að ganga í kringum mig, fólk er að hrynja í flensu og kvef og eitthvað ógeð.  Nú er Kristín heima í dag, búin að fara í skólann á mánudag og þriðjudag ferlega lasin en gafst upp í morgun, hún hóstar og hóstar og svimar og er ægilega lasin.

 

  Ég las í fréttablaðinu um ástæður útivistartíma fyrir börn og unglinga, nú má Lárus Ingi t.d. bara vera úti til 20:00 og Kristín til 22:00 og það er meðal annars til að börn og unglingar fái nógan svefn;) Þau þurfa nefnilega minnst 8-10 tíma svefn og sum meira en það, bara til að halda dampi í skólanum og því sem þau eru að geraJEkki mundu margir unglingar viðurkenna það samt:haha: Það er ægilega hallærislegt að fara “snemma” í rúmið að hvíla sig.

Maður á helst að vaka langt frameftir og vakna svo hress í skólann, en gerist það oft??? NEI!!! Svo sannarlega ekki. Og hvað er svona spennandi  að gerast á nóttuni, þau eru að hanga lengi, lengi á MSN og senda SMS og hringjast á, og svo bara að VAKA!!!

  Mér finnst nú bara hreinn dónaskapur að hringja mjög seint í önnur hús. Að minnsta kosti reyni ég að hringja ekki eftir klukkan 23 á kvöldin, í allra síðasta lagi, og þá bara í fólk sem ég reikna með að sé enn vakandi.  (samkvæmt fyrri reynslu) :lol: og auðvitað eru undantekningar á öllum reglum, það getur alltaf eitthvað gerst svo maður þurfi að ræsa einhvern;)  

 

Lárus Ingi ætlar að fara í prufutíma í Júdó í dag, veit ekki afhverju hann langar í Júdó en ekki Karate, hélt að það væri mun meira freistandi, en hann er harður á að prufa Júdó, svo hann fær að prufa það. Svo kemur bara í ljós hvað hann vill gera;) 

  

En svo að lokum kemur leiðsögnin að venju;

   5.september  

 

Ungt fólk í skóla ætti að hafa námið í fyrsta sæti. Það segir sig sjálft að trú er mikilvæg, en trú er eitthvað sem við iðkum út allt lífið. Það eru ákveðin tímabil og aldur þar sem við ættum að læra. Ef við vinnum ekki ötullega á því tímabili, getur verið að okkur mistakist að afla þekkingar og færni, og við gætum iðrast þess mikið seinna. Trú sannar sig í daglegu lífi. Fyrir ungt fólk í skóla, sýnir trú sig í námi þeirra. Á þessu tímabili táknar það að helga sig náminu mikilvægan hluta af  trúariðkun þeirra.

  

Þýtt úr For today & tomorrow, daily encouragement, Daisaku Ikeda

 

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 10:59:17 / daishonin

mín áskorun farin

Nú er pósturinn til Guðlaugs og Jóhönnu farin frá mér;)

 

 

  Einhvern tímann steytti hún hnefann út í loftið og sagði “minn tími mun koma” og nú er komin tími á að láta reyna á hversu mikils megnug hún er og hversu mikið fólkinu sem hefur peninga milli handa er í mun að þeir sem hafa lítið og rétt skrimta fái réttlát laun.

Það virðist nefnilega vera raunin að fólkið sem við veljum til að stjórna öllu í landinu fyrir okkur er ekki starfi sínu vaxið, það ofmetnast af völdum sínum og verður gráðugt.

  

Það eru t.d. alveg hreint með ólíkindum þessar upplýsingar um laun sums fólks sem eru að birtast í fjölmiðlum, ekki það að mér er nákvæmlega sama þótt einhver hafi tugi milljóna í tekjur á mánuði, ef það væri eitthvað réttlæti handa hinum.

  

Það er magnað hversu mikið þetta fólk þarf í laun, ég bara skil ekki hvað er unnið með þessum geðveiku upphæðum, það er ekki nokkur leið að eyða þessu öllu og enginn tekur peninga með sér þegar hann/hún deyr. Og þótt maður vilji kannski skilja eitthvað eftir sig handa afkomendunum þá er nú kannski alveg hægt að gera það þótt það séu ekki tugir eða hundruðir miljóna í arf8|

 

  Ég var til dæmis voða glöð einu sinni þegar ég fékk eina miljón í arf:haha:  Hver og einn hlýtur að ætla að sjá fyrir sér sjálfur og ekki hollt að fá allt upp í hendurnar hvort sem er.  

En svona að lokum; 

4.september 

Leiðtogar sem bera ábyrgð á að skipuleggja og halda umræðufundi í SGI verða að fræðast. Ef þeir gera það ekki, geta þeir ekki vonast til að gera þátttakendurna ánægða og hrífa þá með ákafa sínum og krafti. 

Þýtt úr For today & tomorrow, daily encouragement, Daisaku Ikeda

 

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 08:07:28 / daishonin

Tryggingastofnun Íslands

Tryggingarkerfi okkar íslendinga er til háborinnar skammar og hafa nokkuð margir verið að skrifa um þessi mál inn á bloggum sínum og það kom þessi hugmynd á einu blogginu að mótmæla þessu og hér kemur hún.......  

Hugmyndin er þessi. Á þriðjudaginn fyrir hádegi milli 10 og 12 sendi allir öryrkjar, aldraðir og aðrir þeir sem vilja taka þátt tölvupóst á netföng heilbrigðisráðuneytisins og félagsmálaráðuneytisins með meðfylgjandi texta:

 ....   Ég skora hér með á íslensk stjórnvöld að leiðrétta þegar í stað kjör öryrkja og aldraðra til samræmis við íslenskan veruleika.... (hugmynd að texta).... .

undirskrifað af viðkomandi með kennitölu.   

 

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra     gudlaugur.tor@htr.stjr.is

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra  johanna@althingi.is

Ragnhildur Arnljótsdóttir  ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneyti    ragnhildur.arnljotsdottir@fel.stjr.is  eða  ostur@fel.stjr.is">postur@fel.stjr.is

 

Þið sem lesið þetta setjið þetta á bloggsíðurnar ykkar og biðjið jafnframt aðra um að gera slíkt hið sama. Með einhverju svona átaki væri möguleiki að koma skilaboðum til stjórnvalda í verki og láta í ljós óánægju með ástandið.   

og svo að lokum;

3.september 

Hið sanna eðli mótast aðeins í gengnum erfiðleika og þrautir. Ennfremur, er það samband meistara og lærisveins, ekki gerð samtakana, sem byggir upp skapgerð. Margir merkir fræðimenn, frumherjar og leiðtogar í heiminum hafa tekið eftir því hversu þýðingarmikið samband meistara og lærisveins er. 

Þýtt úr For today & tomorrow, daily encouragement, Daisaku Ikeda

  

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.09.2007 20:28:01 / daishonin

bara svo að það sé á hreinu

ég nenni ekki moggabloggi og er komin aftur;) ætla að eyðileggja það og vera hér áfram.  svo ég cópíaði og peistaði hingað yfir dagsfærsluna.8| 

 

Þetta verður nú ekki langt hjá mér í dag, ég er svo uppgefin eitthvað og lítill þróttur í mér. Ætla nú samt að fara í Kolaportið og ná í harðfisk og fara svo að kaupa buxur á drenginn minn, svo hann geti nú verið skikkanlegur í skólanum:lol:

 

 

Fór á kosen-rufu gongjo í morgun  og það er alltaf jafn hátíðlegt og gaman að hitta alla vinina.   

Stefni á að eiga góðan dag og skemmtilegan, mamma ætlar að koma með okkur LIL að versla og Kristín ætlar að hitta pabba sinn og hjálpa honum eitthvað

En svona að lokum;  

2.september  

Því sterkara mótlæti utan frá, því sterkari verður staðfestan í að neyta allrar innri orku sinnar í að berjast gegn því- svona er hugarfar æskunnar. 

Þýtt úr For today & tomorrow, daily encouragement, Daisaku Ikeda


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.09.2007 13:11:21 / daishonin

farin til prufu allavega

ég ætla að prufa að blogga á http://ditto.blog.is í viku, veit nú ekki hvort það er nokkuð betra, ýmislegt sem er að pirra mig nú þegar. en kíkið þangað og sjáið hvernig gengur;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Klukkan
Dagsetning
13. mars 2010
RSS tengill
Leitarbox